BG þjónustar daglega fjöldan allan af fyrirtækjum, stofnunum, verslunum, sameignum ofl, ásamt daglegum ræstingum. Þjónusta BG er allan sólarhringinn allt árið um kring.
Í daglegum ræstingum er leitast eftir að bjóða heildarlausnir og losa viðskiptavininn þannig við allt umstang sem hreinlætismálum fylgir.
Hvað er oftast innifalið í þjónustunni
- Ræstingar á gólfum, teppum ofl.
- Ræstingar á borðum, hillum, stólum, innanstokksmunum ofl.
- Ræstingar á hurðum, millglerjum, gluggakistum.
- Ræstingar á gluggum að innan.
- Ræsting á gluggum að utan (anddyri er hægt að hafa innifalið).
- Ræsting á snyrtingum.
- Umsjón og innkaup á hreinlætisvörum og pappír.
- Frágangur í fundarherbergi
- Frágangur í eldhúsi og kaffistofu (uppvask ofl).
- Viðhaldsbónun á gólfum.
- Ruslapokatæmingar og skiptingar.
- Umsjón með lóð fyrir framan byggingar.
- Ræstingar á lagerrýmum.
- Mottuleiga.
- Gluggaþvottur.
- Reglulegar hreingerningar
- O.fl
BG leggur metnað sinn í vönduð vinnubrögð starfsfólks sem treysta má fullkomnlega.
Stjórnendur BG hafa áratuga reynslu af stjórnun og áætlananagerðum við ræstingaþjónustu.