BG hefur síðan 1995 boðið húsfélögum upp á reglulegar ræstingar á sameignum. Þrifin fara fram einu sinni eða oftar í viku en það fer eftir stærð, tegund og ræstiþörf viðkomandi sameignar.
Hvað er innifalið í þjónustunni?
Teppi í sameign eru ryksuguð
Gólf í anddyri eru ræst
Gluggar í anddyri eru ræstir að innan og utan
Gluggar í sameign eru ræstir að innan
Gluggakistur eru ræstar
Handriði er þrifin reglulega
Hurðarkarmar eru ræstir
Póstkassar eru ræstir
Gólf í sameign eru ræst
Gólflistar eru ræstir
Blettir á veggjum eru fjarlægðir*
Þvottahús er ræst reglulega
Geymslugangar eru ræstir reglulega
Hjólageymsla er ræst reglulega
Aðrir hlutir sem eðlilegir teljast eru ræstir*
*Fer eftir ræstitíðni ofl.
BG býður einnig daglegar ræstingar á öllum stærðum sameigna.
Við komum á staðinn og gerum föst verðtilboð að kostnaðar og skuldbindingalausu.