Saga BG
Þegar ég stofnaði BG þjónustuna 18 ára gamall árið 1995, með ryksugu og eina teppahreinsivél að vopni var það trú á eigin getu og hömlulaus bjartsýni sem varð til þess að ég fór að bjóða upp á hreingerningar í heimahúsum og teppahreinsanir á stigagöngum fjölbýlishúsa. Fljótlega þurfti ég að ráða til mín minn fyrsta starfsmann þegar verkefnin urðu fleiri og stærri á sama tíma og sérfræðiþekking mín jókst. Ég gerði mér fljótlega grein fyrir mikilvægi þess að viða að mér innlendri og erlendri þekkingu, nýjungum í hreingerningum og byggja upp traust sambönd við framleiðendur.
Með því að bjóða hagkvæmar lausnir fyrir fyrirtæki og fjölbýlishús hefur BG vaxið á hverju ári.
Á þeim 3 áratugum sem fyrirtækið hefur starfað hefur það margfaldast að stærð og er í dag eitt af leiðandi hreingerningafyrirtækjum landsins. Á hverjum degi ræstir BG tugþúsundir fermetra hjá fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum. Um leið höfum við fjárfest mikið í sérverkefnadeild BG sem er ein sú tæknivæddasta á landinu og getur leyst mjög flókin og krefjandi verkefni á skilvirkan hátt.
Saga BG verður ekki sögð án þess að minnast á starfsfólkið. Fyrirtækinu hefur borið gæfa til þess að hafa innanborðs hæft og samviskusamt starfsfólk sem hefur starfað lengi hjá fyritækinu. Starfsmannavelta hjá BG er ein sú lægsta sem þekkist á þessu sviði.
Í dag horfum bjartsýn til framtíðar og þökkum viðskiptavinum okkar fyrir það traust sem þeir hafa sýnt okkur í gegnum árin og bjóðum nýja viðskiptavini velkomna.