BG Þjónustan lýsir þeim vilja að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla. Það er jafnframt vilji BG að jafnréttisstefnan sé sýnileg og virk í framkvæmd.
Jafnréttisstefna BG Þjónustunnar felur það í sér að virða beri ákvæði laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við ráðningar í störf. Hvorki skal mismuna umsækjendum né starfsmönnum eftir kynferði né mismuna þeim á nokkurn hátt um vinnuaðstæður og vinnuskilyrði. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jöfnun á stöðu kynjanna skulu vera virkur þáttur í starfsmannastefnu BG Þjónustunnar. Leitast skal við að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna.
Þess skal gætt að laus störf hjá BG Þjónustunni séu auglýst í samræmi við reglur þar um og jafnréttissjónarmiða skal gætt þegar ráðið er í stöður. Það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfshópi skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningar í störf þegar umsækjendur eru jafnhæfir. Við úthlutun verkefna skal þess gætt að bæði kynin eigi jafna möguleika innan fyrtækisins. Þá skal þess gætt við tilfærslu í störfum og við uppsagnir að kynjum sé ekki mismunað. Gæta skal þess að konur og karlar njóti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna sbr. lög nr. 96/2000. Það telst þó ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar og barnsburðar. Starfsmenn BG skulu eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið.